Um IceBAN

IceBAN er öflugt og faglegt tengslanet englafjárfesta með það að markmiði að greiða leiðina fyrir englafjárfestingar á. Íslandi.

Með því að tengja fjárfesta við hvor aðra, og tækifæri, stuðlum við að vexti nýsköpunar, auknum fjármögnunartækifærum fyrir frumkvöðla og sterkari brú milli fjármagns og nýsköpunar.

IceBAN vinnur markvisst að því að efla þekkingu, stuðla að samvinnu og skapa traust og uppbyggilegt umhverfi þar sem nýjar hugmyndir fá að þroskast og dafna.

Við trúum á mátt tengslanetsins sem hreyfiafl fjárfestinga, framfara og jákvæðra samfélagsáhrifa.

Markaðstorg IceBAN

Skimuð fjárfestingartækifæri

Skimuð fjárfestingartækifæri

Lokaðir Félagsviðburðir IceBAN

Fagkunnátta
og tengsl

Verkfærakista IceBAN

Sniðmát fyrir
englafjárfesta

Stjórn IceBAN

Á bakvið félagið standa reyndir fjárfestar, frumkvöðlar, og leiðtogar úr atvinnulífinu.

Jón I. Bergsteinsson

Stjórnarformaður

Svava Björk Ólafsdóttir

Framkvæmdastjóri

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Ritari og meðstjórnandi

Marinella Haraldsdóttir

Gjaldkeri og meðstjórnandi

Hrönn Greipsdóttir

Meðstjórnandi

Ægir Þorsteinsson

Meðstjórnandi

Framkvæmdastjóri og dagleg starfsemi

Svava Björk er reynslumikill leiðtogi í vistkerfi nýsköpunar og hefur í gegnum árin verið þjálfari frumkvöðla og ráðgjafi á sviði nýsköpunar. Hún gegnir starfi verkefnastjóra frumkvöðla og nýsköpunar við Háskólann á Akureyri og er jafnframt stofnandi RATA, IceBAN og Hugmyndasmiða.

Sem framkvæmdastjóri IceBAN stýrir hún daglegri starfsemi, heldur utan um samskipti við fjárfesta, skipuleggur viðburði og fræðslu og vinnur að því að styrkja tengslanetið. Með markvissum hætti leitast hún við að tengja saman fólk, hugmyndir og fjármagn, tryggja rétt tækifæri innan netsins og styðja við uppbyggingu sterks og trausts fjárfestasamfélags.

IceBAN er svörun við eftirspurn

Fjársterkir einstaklingar sem hafa áhuga á að styðja við sprota og nýsköpunarverkefni hafa hingað til ekki haft sameiginlegan vettvang á Íslandi. IceBAN (Icelandic Business Angel Network) var stofnað í maí 2024 til að svara þeirri eftirspurn. IceBAN er faglegt tengslanet fyrir englafjárfesta, sem heldur m.a. viðburði sem tengja meðlimi við verkefni, og efla fagkunnáttu og þekkingu á englafjárfestingum.

Allt með það að markmiði að auka líkur á árangri.

Verkefnin okkar

Aðal markmið félagsins er að efla umgjörð og stuðningsumhverfi englafjárfestinga á Íslandi.

Við stöndum fyrir kynningum og fræðsluviðburðum víða um land þar sem fjárfestar og frumkvöðlar fá tækifæri til að tengjast, miðla reynslu og skapa tækifæri til vaxtar.

Okkar gildi: tengsl, þekking og traust, eru lykillinn að öflugu tengslaneti. Með upplýstu, virku og samheldnu englasamfélagi sköpum við vettvang fyrir samstarf, vöxt og árangur.

Samtökin í tölum

2024

Stofnár

37

Fjöldi meðlima

150+

Fjöldi verkefna hafa sem sent inn kynningar

15

Fjöldi fjárfestinga
(fyrirtæki sem hafa lokið fjármögnun eftir kynningar hjá IceBAN)

Við köllum eftir íslenskum englafjárfestum

Komdu með á næsta félagsviðburð og fáðu að kynnast öðrum fjárfestum og spennandi fjárfestingatækifærum