
Fróðleikur
IceBAN leggur áherslu á að byggja upp fræðslu og miðla þekkingu um englafjárfestingar og vistkerfi nýsköpunar – bæði fyrir nýja og reynda fjárfesta, sem og sprotafyrirtæki. Markmiðið er að styðja við upplýstar ákvarðanir og bæta tengsl milli lykilaðila í vistkerfinu.
Við erum nú að þróa okkar eigið fræðsluefni sem byggir á íslensku samhengi og reynslu úr starfi samtakanna. IceBAN hlaut nýverið styrk úr Örvar-sjóði nýsköpunarráðuneytisins sem gerir okkur kleift að stórefla þetta starf.
Á næstu mánuðum munum við birta fjölbreytt og hagnýtt efni – bæði fyrir fjárfesta og frumkvöðla – og bjóða upp á sérhæfða fræðsluviðburði víða um land.
Reynslusögur úr íslensku nýsköpunarumhverfi
Í þessu myndbandi deila fjórir englafjárfestar reynslu sinni af því hvernig þau tóku sín fyrstu skref sem englar, hvað englafjárfestingar fela í sér og hvað skiptir máli þegar fjárfest er í sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum.
Myndbandið er hluti af fræðsluefni IceBAN og er ætlað þeim sem vilja skilja betur hlutverk englafjárfesta í íslensku nýsköpunarumhverfi, kynnast ferlinu á mannamáli og sjá hvernig ólík reynsla, tengsl og fjármagn geta stutt við uppbyggingu nýrra fyrirtækja.
Spurt og svarað
Hver getur orðið englafjárfestir?
Hversu miklu þarf að fjárfesta?
Hvernig finn ég tækifæri til að fjárfesta í?
Hvernig undirbý ég mig fyrir fjárfestingu?
Hvað þurfa sprotar að hafa tilbúið áður en þeir leita til fjárfesta?
Hvað felst í því að vera „virkur engill“?
Vilt þú leggja spennandi verkefnum lið með fjármagni?
Komdu með á næsta félagsviðburð og fáðu að kynnast öðrum fjárfestum og spennandi verkefnum